Það var erfið fæðing í Víkinni í gær. Leikurinn ætlaði aldrei að byrja. Leikklukkan var eitthvað að stríða Víkingsmönnum og vildi ekki fara í gang. Leikmenn beggja liða þurftu að halda á sér hita á meðan það var verið að finna út hvað var að klukkunni. Á meðan fylltist húsið af áhorfendum en það verra var að meirihlutinn voru Valsáhorfendur, ekki nógu gott. Eftir 20-30 mínútur ákváðu dómarar að byrja leikinn og var fyrri hálfleikur spilaður án leikklukku. Það var frekar furðulegt.
En hvað um það. Víkingsstelpur byrjuðu leikinn betur og komust í 2-0. En þá kom góður leikkafli hjá Valsstúlkum og þær komust í stöðuna 3-7. Eftir það má segja að leikurinn hafi verið eins, þ.e. víkingsstelpur náðu að minnka muninn niður í tvö mörk 5-7 en þá gáfu valsstelpur í og juku forskotið og staðan varð 7-11, þetta hoppaði svona á 3-4 mörkum. Víkingur skoraði 3 mörk í röð en svo komu valsstelpur og skoruðu næstu 3 mörkin. Í hálfleik var staðan 13-15. Í byrjun seinnihálfleiks stungu gestirnir af og náðu stöðunni 14:20 og má segja að eftir það áttu víkingstúlkur ekki séns. Hvorki vörnin né sóknarleikurinn var að smella og þurfa stelpurnar okkar að bæta sig fyrir næsta leik sem er á móti FH næstu helgi. Markaskorun var þessi:
Víkingur:
Natasa 10/1, Ásta 4, Sigrún 3, Andrea 2/1, Helga Birna 1, Margrét 1, Helga JR 1
Erna varði 16 bolta, þar af 1 víti
Valur:
Díana 6, Ágústa Edda 6, Arna 4, Hafrún 3, Silla 3, Anna 2, Árný 1, Soffía 1
Berglind varði 15 bolta, þar af 1 víti.
Já, stelpurnar okkar þurfa svo sannarlega að taka sig saman í andlitinu og fara að sigra leiki. Ef við ætlum að vera í toppbaráttunni þurfum við að ná í stig gegn liðum eins og Val. En nú er það að einbeita sér að leiknum á móti FH næstu helgi. Þar verður barist um líf og dauða.
En látum ekki Valsmenn taka okkur í nefið á áhorfendabekkjunum. Þeir öskruðu áfram valur allan tíman og studdu sitt lið....þetta er okkar heimavöllur og við verðum að styðja stelpurnar okkar til sigurs. Áfram Víkingur