Á brattann að sækja

Þetta byrjaði allt svo vel.
Reynir varði, vörnin var sterk, sóknin setti hann inn og Víkingar komust í fimm marka forskot í fyrri hálfleiknum og héldu því um tíma. En undir lokin klóruðu FH í bakkann og í hálfleik var þriggja marka munur.
En FH-ingar komu ákveðnari til leiks í seinni hálfleik, markvörður þeirra fór að verja og áður en varði var staðan jöfn. Síðan var FH lengst af með þetta tveggja marka mun þar til undir lokin þegar Brjánn var rekinn útaf og þrjár mínútur eftir. FH komst í þriggja marka mun og Víkingar áttu ótímabært skot framhjá. Sókn rann síðan út í sandinn á báða bóga og FH ingar náðu boltanum á síðustu sekúndunum, komu honum fram og settu 29. markið. 29-25 og þar sem markatalan telur í samanlögðu eru þetta gríðarleg vonbrigði. Það munar miklu hvort farið er með fjögur mörk á bakinu í seinni leikinn eða tvö og það var eins og leikmenn gerðu sér ekki alveg grein fyrir að þetta voru ekki leikslok heldur bara hálfleikur í tveggja tíma leik. Enda er það mjög sjaldgæf staða.
En miðað við leikinn í dag er það alls ekki fjarlægur möguleiki að vinna seinni leikinn nógu stórt, nú þurfa Víkingar að fjölmenna á föstudaginn og styðja okkar menn til sigurs!

3.30.2005 kl: 21:01