Deildin búin

Er ekki kominn tími á skrif hérna á síðunni. Vonandi er einhver enn að skoða hana og sá sem þetta les fær loforð um umfjöllun um næstu leiki hér á síðunni.
Deildin kláraðist fyrir páska og var hörkubarátta í gangi í DHL-deild karla. Strákarnir spiluðu úrslitaleik á móti Þór Akureyri um hvaða lið kæmist í umspil um sæti í 8-liða úrslitum. Þórsarar leiddu í hálfleik og virtust líklegri til að klára leikinn en með miklum vilja tóku Víkingar af skarið og gerðu 6 mörk í röð í síðari hálfleik. Leikurinn endaði 30-33 fyrir Víking og tryggðu strákarnir sér 7. sæti deildarinnar. Fyrstu 6 liðin í úrvalsdeildinni komast beint í úrslitakeppni en liðið í 7. sæti leikur um laust sæti á móti FH sem endaði í öðru sæti 1. deildar. Liðið sem sigraði fyrstu deildina (Fram) kemst beint í úrslitakeppnina.
Leikið er í Kaplakrika og í Víkinni og kemst það lið áfram sem annaðhvort sigrar báða leikina eða er með betri markatölu. Þetta verður því hörkuspennandi rimma sem hefst miðvikudaginn 30. mars. Fyrst er leikið í Kaplakrika kl. 19:15 og svo er seinni leikurinn í Víkinni föstudaginn 1. apríl kl. 19:15 (þetta er ekki aprílgabb).

Stelpurnar okkar spiluðu einnig sinn síðasta leik í deildinni fyrir páska. Margt hefur gerst hjá stelpunum og ber þar hæst að nefna þjálfaraskipti núna í febrúar. Natasa Damljanovic tók við þjálfuninni og hafa stelpurnar æft mjög stíft síðan. Til aðstoðar Natösu á bekknum eru þær stöllur Guðmunda og Eva Halldórsdóttir en þær þekkja liðið ef ekki betur en sinn eigin lófa. Liðið hefur sigrað einn leik á móti Val en tapað tveim (á móti FH og Stjörnunni) síðan Natasa tók við, en á margt inni og mun vonandi blómstra í úrslitakeppninni. Liðið endaði í 7. sæti deildarinnar líkt og strákanir og munu taka á móti Eyjastúlkum í 8-liða úrslitum. Eyjastúlkur hafa lent í smá basli í vetur og hafa sent heim einn af sínum bestu leikmönnum Zofiu Pastor. Þær enduðu í öðru sæti deildarinnar eftir að hafa tapað úrslitaleik á móti Haukum í lok síðustu umferðar.
Leikirnir fara fram fimmtudaginn 31. mars kl. 19:15 í Vestmannaeyjum og sá seinni laugardaginn 2. apríl kl. 16:15 í Víkinni. Ef til þriðja leiks kemur þá fer hann fram miðvikudaginn 6. apríl í Vestmannaeyjum.

Það verður því mikil handboltaveisla hjá okkur Víkingum næstu fjóra daga og vonandi geta sem flestir séð sér fært um að mæta og styðja sína menn.
Ekki vera svo feimin við að nota spjallið.
Áfram Víkingur

3.30.2005 kl: 16:12