Það var boðið upp á hörkuleik í Vestmannaeyjum í gærkvöld. Víkingsstúlkur mættu gríðarlega einbeittar til leiks og var það ljóst frá fyrstu mínútu að þær ætluðu sér sigur. Leikurinn var jafn á tölum fyrstu 15 mínúturnar en þá settu Víkingar í fimmta gír og röðuðu inn mörkum úr hraðarupphlaupum. Þar ber helst að nefna leik Margrétar hornamanns en hún skoraði 7 mörk í fyrri hálfleik. Í hálfleik var staðan 14-17 fyrir Víking og var ljóst að Eyjastúlkur ætluðu ekki að gefa neitt eftir og komu þær tvíefldar til leiks eftir hálfleik. Fyrstu 10 mínúturnar í seinni hálfleik var Víkingur í 6 mínútur einum færri og náðu þá Eyjastúlkur að minnka muninn. Leikurinn var jafn en þegar um 10 mínútur voru eftir þá náðu heimamenn 2 marka forystu og héldu henni út leikinn og unnu því leikinn. Víkingsstúlkur áttu að klára þennan leik en því miður náðist það ekki að þessu sinni, en það er ekki spurning að leikurinn á laugardaginn verður hörkuspennandi og það er alveg á hreinu að stelpurnar eru ekki tilbúnar til að fara í sumarfrí þá.
Allt Víkingsliðið stóð sig vel en það verður að minnast á frammistöðu Margrétar og Ástu sem skoruðu samtals 17 mörk af 27 mörkum Víkings. Bestar í liði ÍBV voru Alla Gokorian með 12 mörk og Guðbjörg Guðmannsdóttir kom sterk inn í seinni hálfleik.
Allir að mæta í Víkina á laugardaginn kl. 13:00 (ATH breyttur leiktími)